17.12.2008 | 15:39
Bara kosið ef Sjallarnir tapa völdum?
Jæja það er gott að sjallarnir sjá fyrir sér aðstæður þar sem hægt er að boða til kosninga.
Greinilegt að það er engöngu glapræði að kjósa ef Sjálfstæðisflokkurinn er við völd. Um leið og útlit er fyrir að ríkistjórnarsamstarfið springi og fálkinn hætti að geta kroppað í hræið (íslensku þjóðina) að vild þá skal kjósa.
|
Frekar kosningar en að láta undan dulbúnum hótunum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2008 | 13:01
16-liða úrslit ekki 8-liða úrslit!
Kommon!
Er ekki grundvallaratriði að vita hvaða umferð þú ert að skrifa um?
|
Stórslagur í Grindavík í kvöld |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2008 | 11:01
Þau eiga líka þessi fyrirtæki...
Emmessís, Áltak, Yggdrasill, Sævar Karl, Kraum, Sjá og Agóra.
Þau áttu Skífuna en ég held að þau séu búin að selja.
Annars er þetta pakk nátengt Baugi og bróðir Sverris, Skarphéðinn Berg Steinarsson, var m.a. stjórnarmaður í FL Group.
Ef aðrir vita um fleiri fyrirtæki sem þau eiga væri það forvitnilegt.
|
Next og Noa Noa aftur í eigu sömu hjóna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
5.12.2008 | 15:44
Hvað með hinar löggurnar?
Það voru amk tveir aðrir lögreglumenn á staðnum sem urðu vitni að árásinni.
Þeir hvorki reyndu að stöðva árásina né tilkynntu yfirmönnum sínum um að félagi þeirra hefði brotið lög í starfi.
Hvers vegna sleppa þeir án áminningar?
|
Lögreglumaður sakfelldur fyrir líkamsárás |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.12.2008 | 10:47
Olíblaut tuska + Range Rover = ?
Allir eigendur Range Rover bifreiða geta sótt olíblautar tuskur sér að kostnaðarlausu til B&L.
Nausynlegt er að láta amk. 5 liggja saman í hrúgu til að sjálfíkveikja eigi sér stað og gott að skilja eftir hlutabréfin í Kaupþingi í bílnum svo að nægur sé eldmaturinn.
Maður vorkennir bara handrukkurum núna og þá sérstaklega Benna Ólsara. Aumingja maðurinn missir vinnunna og núna er útlit fyrir að aukavinnan hans með sveigjanlega vinnutímanum fuðri upp þegar olíublautar tuskur taka við.
|
Kviknaði í Players |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2008 | 17:18
Vanhæfi
Það þarf enginn að segja mér að allar þessar tilkynningar hafi verið tilhæfulausar eða ekki hafi verið næg sönnunargögn til að kæra.
Hvað er eiginlega að?
Nennir lögreglan ekki að rannsaka þessi mál eða eru hún ekki hæf til þess?
|
Rúmlega 1100 tilkynningar á þremur árum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.12.2008 | 10:13
9,5% til einkarskólanna.
Mér finnst þetta hlutfall ansi hátt. Í fljótu bragði man ég eftir nema Háskólanum í Reykjavík, Bifröst, Versló og Hraðbraut þegar ég hugsa um einkarekna skóla á framhalds- og háskólastigi.
Vonandi getur fólk frætt mig um hvort þeir séu fleiri.
Ég held að einkareknum leikskólum sé að fjölga og geri ég mér ekki grein fyrir hversu stórt hlutfall þeir eru af heildarfjöldanum.
|
106 milljarðar til fræðslumála |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.11.2008 | 15:35
Voru þær ekki þarna líka á laugardaginn?
Eða voru það alíslenskar stelpur á djamminu?
Þær voru allavega svipað mikið klæddar.
|
Í eigin skinni á Lækjartorgi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.11.2008 | 09:18
Nýlegur Volvo?
Ég er ekki alveg að fatta hvaða máli það skiptir að bíll þessarar fjölskyldu sé nýlegur Volvo 
Hefði fréttin ekki verið birt ef þetta hefði verið 5 ára Volvo? Eða nýlegur Hyundai?
|
Glerbrotum af Turninum rigndi yfir barn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
20.10.2008 | 17:30
Gott framtak en hvað kostar?
Það vantar alveg í þessa frétt hvað hlaðborðið kostar.
Skv. heimasíðu Sjávarbarsins, www.sjavarbarinn.com, kostar hlaðborðið 2.600kr en það er ekkert minnst á þessa lækkun á heimasíðunni þeirra þannig að ég held ekki að þetta sé lækkaða verðið.
1.300kr fyrir gæða sjávarréttahlaðborð tel ég nú bara gefins og hvet ég alla til að styðja þau fyrirtæki og þjónustuaðila sem koma á móts við okkur almenning á krepputímum. Sniðgöngum okurbúllurnar og verslum þar sem "góðu gæjarnir" eru.
|
Sjávarbarinn lækkar verð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)


malacai
mariarichter
nanna